Dúfur eru bara rottur með vængi...

BiNNa

24.01.2008 20:01:10 / binna

No title

Best að blogga já, langt síðan síðast...

Ég er byrjuð í praksis á geðdeild, það er mjög fyndið :) samt alltof rólegt, leiðist oftast bara... Mikið af fundum sem maður getur hálf sofnað á... og sjúklingarnir kalla þá sem vinna þarna píkusleikjara og fleira skemmtilegt... svo sjá þeir ofsjónir og heyra raddir og ein skaðar sjálfan sig og var næstum búin að fremja sjálfsmorð um daginn... action en samt ekki...

Ég er ein heima og flestar vinkonur mínar farnar heim til sín um helgina :( boring...

Vann á elliheimilinu síðustu helgi og einn kall þar er 100ára!! Ýkt hress miðað vi ðallt.. lítur samt út eins og múmía hehe... sköllóttur, lítill, mjór og hvítur... en svo datt greyið fram úr rúminu sínu og það var blóðbað :S næs...

Annars bara get ég ekki ákveðið mig hvar ég á að vinna í sumar! Elliheimilinu, geðdeildinni eða jafnvel sjúkrahúsinu...? 

Svo er líklega Kýpur 9.-24. júní =) sweet!! Eigum bara eftir að panta, vona að við fáum þetta á 40-50þús kall... ekki slæmt

Svo kemur Svala gella 29.feb í helgarheimsókn :) jejj 

Frekar miður mín að Heath Ledger sé dáinn:( voða sorglegt... 

Var að skoða flug heim um versló...ógisslega dýrt :( 35 þúskall allavega! Það sökkar....


» 6 hafa sagt sína skoðun

18.12.2007 11:24:35 / binna

kominn tími á spánarblogg?

Þar sem það er liðinn 1 og hálfur mánuður síðan ég kom heim frá spáni þá finnst mér núna tími til kominn... :) en það er orðið svo langt síðan að stálminnið er farið að bregðast svo ég hef þetta í pungtum hehe...

 

  • Spiluðum stórkostlega mikið minigolf á 18holu golfvellingum hafs Diego og Diego jr. þar var líka þythokký og ég hef aldreihlegið jafn mikið eins og þegar ég sá mömmu keppa við Villý frænku, þær voru svo retarded í hreifingum, skil ekki hvaðan ég fæ þessa þythokkýhæfileika mína, en ég vann Villý með vinstri og í hláturskasti =)
  • Ég fór völlinn á einu yfir pari og sló vallarmet (veit allavega ekki um neinn sem hefur gert betur) :)
  • Lá doltið á ströndinni með Villý og fengum okkur oftast Thai massage... ljúft Gellan sem nuddaði okkur var með kúl derhúfu með viftu á og kunni bara að veifa, ekki tala hehe sakna hennar...hún var svo kjút
  • Ég og mamma vorum duglegar að shoppa og ég keypti mér slatta af fötum, aðallega á Zöru og allskyns annað dót... svo var ég rænd á markaðnum og varð miður mín :( tapaði 10þús kalli og nýja flotta veskinu mínu... niðurstaða: spænska löggan kann ekki ensku
  • Fórm í tívolí sem var samt ekki með neinum svaka tækjum, það sem var mest spennó var svona naut sem maður átti að sitja á og halda sér fast því það reyndi að kasta manni af... gekk skrautlega.. hehe og svo vann ég 2 bangsa sem var varla pláss fyrir í töskunni
  • Góður matur á spáni, fórum út að borða 2svar á dag ca...
  • Ég og mútterið skelltum okkur svo í 3 daga til Barcelona og það er geðveikt flott þar!!
  • Svo fórum við í spænskt bakarí og mamma var alveg viss um að það væri ókeypis svona "smakk" eins og á íslandi... hmm ég var nú frekar efins um það en hún og villý gæddu sér á "smakkinu" beint fyrir framan bakarískonuna en ég ákvað að vera kurteis og spurja hvort þetta væri ókeypis... NEI sagði konan og færði bakkann með góðgætinu og mamma sagði bara Óóóó með fullan munninn... hahaha

Núna veit ég allavega hvaðan ég hef steli-áráttu mína því eftir afmælispartýið á fimmtudaginn tókum vi ðmeð okkkur þetta fínasta jólatré og dekkjastand sem stóð á torginu :) svo keyptum við skraut og stjörnu á það fyrir flöskupeningana :) ekkert smá lekkert!

En þetta partý var alveg æði, vorum svona 30stk í íbúðinni okkar og einn strákur settist á stólinn sem ég var búinn að brjóta og datt beint í gólfið og hélt að hann hafi brotið hann.. hehe Dagurinn eftir var samt slappur... shit... þunn og þurfti að þrífa barrið úr tröppunum og laga rafmagnsleysið frá kvöldinu áður ... þetta var auðvitað gert á náttbuxunum eftir 6 tíma hvíld á sófanum yfir Love Actually og Home and Away... svo þurftum við Linn að gera Rock-Paper-Scissors þegar Ida kom í heimsókn hver ætti að standa upp og opna... 

Fékk fullt af ammælisgjöfum =) blender, 3 vínflöskur, sérhannaðar nærbuxur frá bente sem stendur BINNA framaná og UP BUT COCONUT aftaná hehe og mynd ad kókoshnetu á rassinum, geggjað kúl =) pínu einkahúmor í gangi... svo fékk ég súkkulaði, sleikjóa, augnskugga, sokka, púður og púðurbursta, bol og derhúfu :) 

Ég á eftir að kaupa allar jólagjafir... obbobbobb, er að vinna í kvöld, redda þeim á morgun... ég nenni líklega ekki að senda neinar jólagjafir til íslands svo ef einhver vill gefa mér jólagjöf þá fær hann sína þegar ég kem :) Kem 28.des !!


» 4 hafa sagt sína skoðun

30.11.2007 20:16:10 / binna

siginn fiskur

nýtt blogg í aðsigi....

trommur...

ég reyndi nebbla um daginn en það fokkaðist svo ég varð pirruð og gafst upp :) var komin með þetta fína blogg, meiraaðsegja um spánarferðina...

ykkur er btw öllum boðið í afmælisveisluna mína 13.desember =)

over 

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

19.10.2007 20:45:18 / binna

frábært sjónvarpsefni... relaxing

jepp nú er ég bara að chilla allsvakalega á sófanum :) þægilegt að vera ein heima og geta glamrað á gítar án þess að bögga neinn og skella í einum og einum Friends þætti :)

búin að vera lasin undanfarið.. úff var lasin fyrir helgi en vaknaði svo eldhress á lau síðasta að við ákváðum að skella okkur á djammið.. ég, linn, anne gunn og monika... ég varð aðeins of ölvuð, keypti börger og ég og linn horfðum blekaðar á Friends þangað til ég sofnaði á sófanum, vaknaði kl 8 enn full og lagaði til og lagðist upp í rúm og vaknaði kl 18!!!!! omg... og vaknaði við símann.. fékk sjokk, aldrei sofið svona lengi held ég:S

ætlaði að vera ýkt dugleg að læra en eins og gerist oft þegar maður ætlar að læra ekki einsamall þá fór það til fjandans... ég og bente ákváðum að fara frekar í labbitúr í sólinni með nölu (krúttlega módel hundinn hennar) og baka brownies... =) svo þreif ég íbúðina allsvakalega...

lítið úr lærdómi semsagt, en Á MORGUN verður sko lært...hehe á morgun segir sá lati... til 4, þá fer ég ég ræktina og svo djamm =) eftir hrikalegt beil annan fimmtudaginn í röð... henriette ætlar að hafa partý, ég og linn ætlum að reyna að stúta 3lítra rauðvínskassanum okkar, þetta má ekki skemmast ;)

áskorun dagsins: prófið að spila á 2 blokkflautur með nefinu (eina í hvora nös), var að sjá þetta í sjónvarpinu, gott sjónvarpsefni og hollara en að taka í nefið :)

setti myndir frá oslo á myndasíðuna mína til að halda lífi í greyinu, frá stebbaheimsókn :)

Binna -10 dagar í sólina... eins gott að það verði sól =) 


» 10 hafa sagt sína skoðun

12.10.2007 10:45:28 / binna

föstudagur mínus þynnka

Sit hérna með kakóið í annari og lyklaborðið á tölvunni í hinni... ég er nebbla lasin... búhúhú

Svona svaðalega bólgin í hálsinum að ég get engu kyngt (núna má hafdís koma með sóðalegan brandara)

Hjálpaði ekki einu sinni með bacardi lemon skotið sem ég tók í morgunmat á miðvikud því Linn manaði mig...svo er ég búin að vera að skella í mig Voltaren 2x á dag svo þetta ætti nú að vera búið að batna finnst mér... :(

Núna er Linn í vinnunni og ég ein heima, svo ætlaði að gerast svo dugleg að læra...svaf nú samt lengur en á venjulegum föstudegi svo ég þarf að læra hratt hehe..  en í gær lá ég heima allan daginn.. vaknaði um 2 en þá var Linn búin að fara í ræktina og lá dauð á sófanum svo ég joinaði henni bara á sófann og við horfðum á það mesta af day-time televisioni... svo fór hún í búðina og við bjuggum til nachos :P mmm  og horfðum á meira svjónvarp, skelltum svo í friends og horfðum á nokkra soleis og svo 6 feet under :) hressandi alltaf... svo bara kominn háttatími, rosalegur dugnaður í gær semsagt... okkur tókst samt að gera allsvakalega mikið grín að meðleigjanda okkar, henni Diego... höldum að hún sé með berkla... og hún kann ekki að henda mat, td gömlum vínberjum, mygluðu brauði og vikugamalli upphitaðri pizzu :S jakk...

Spá í að skella mér til Sunnu minnar og Bibbs seinna í dag, svo vonandi verð ég orðin frísk á morgun..!

2 og hálf vika í SPAIN:)

Binna komin í jólafílinginn, dreymir alltaf um jólin nebbnilega =) 


» 4 hafa sagt sína skoðun

08.10.2007 16:07:47 / binna

stefnir í 12 daga...

pásu frá drykkju.. ágætt það :) kannski enn lengri pása í vændum (hahah vændiskona) ef ég djamma ekki á fimmtudaginn hmmm...síðast var það ekki nema vika svo þetta er allt að koma :)

allavega.. þá var haustfrí núna í viku, byrjuðum aftur í skólanum í dag

haustfríið einkenndist af stefáni, áti, tívolíi, shoppíng, ræktarleysi í viku ofl... elin vinkona mín var svo góð að hýsa okkur í oslo :o) mjög kósý að vera hjá henni, svo heyrði ég stebba meiraaðsegja tala dönsku við hana! híhí

geggjaður rússíbaninn í tívolíinu, dó samt úr hlátri þegar ég fékk flugu í andlitið á þvílíkri ferð og reyndi að segja stebba það en hann heyrði ekki hvað ég sagði heldur hékt bara að ég væri að öskra úr hræðslu og dó þessvegna úr hlátri haha... kjánalegt

keypti skó, jakka, nærföt og peysu í oslo og 2 gallabuxur í vikunni fyrir það svo nú er komið verslunarbann á brynhildi, framm að spánarferð þeas... 21 dagur :) ætti að takast

ég lagðist svo lágt að hita upp brownies leftovers ...

ble í bili :haha: 

 

 

 


» 6 hafa sagt sína skoðun

21.09.2007 11:21:37 / binna

tjútt

Aha...

Sit alein hérna því Elin er farin og Sandra í prófi og Linn sofandi... þori ekki að glamra á gítarinn því þá vek ég pottþétt Linn svo ég ákvað nú að blogga! Jejj

Núna er Elin búin að vera í heimsókn síðan á mánudaginn, sorglegt að hún sé farin núna, hún bjó til geggjað nachos handa mér í gær =) geggjað að koma heim úr ræktinni og fá mat mmm, já við hittum íslenska konu í ræktinni, ég og Guðrún sátum og vorum að spjalla, svo kemur þessi kona bara: HÆ, eruði Íslendingar?? Og mig langaði nú bara mest að segja nei... hehe en svo auðvitað lítið annað að tala um sosem þar sem hún var gömul og var ekki í skólanum eða neitt...kjánalegt að fólk nenni að byrja að tala við mann BARA afþví maður er Íslendingur...

Fórum á fótboltaleik síðasta laugardag:) geggjað fjör á nýja Start vellinum, við sátum samt hjá Rosenborg fólkinu því Linn er harður aðdáandi hehe... Start vann samt 2-1, ég bara nokkuð sátt með það, þeir verða nú að bjarga sér frá falli...

Svo kíktum við á sportbarinn hérna í götunni á þriðjudaginn og sáum Rosenborg rústa Chelsea 1-1 =) snilld þegar Rosenborg komust yfir, allt að verða vitlaust! Svo var greyið Chelsea þjálfarinn bara rekinn í gær hehe... úbbs 

Fórum á djammið í gær, surprise aldarinnar :) partý hjá Idu, það er orðið voðalega kósý hjá þeim núna... fórum í nokkra skemmtilega drykkjuleik, svona actionary dæmi og svo miða á ennið og maður átti að giska hver maður væri sjálfur hehe, ég var td. Bin Laden =) og ég vann! Svo var eimmitt mjög gaman að leika "blöðruhálskirtilsskoðun gegnum endaþarm" hehe.. og aðeins of hjúkkulegt partý, greyið strákarnir sem voru í viðskiptafræði fengu að heyra ýmislegt óskemmtilegt :)

Í kvöld er svo rólegt stelpukvöld, ætlum að elda marineraða svínasteik með piparsósu :P mmm og jafnvel horfa á Idol... svo er ég að fara að vinna í fyrramálið, jej..... vonandi kemur Stockerinn minn ekki.... já ég á gamlan karl sem stocker, greinilega of næs við þetta gamla fólk hehe... hann er búinn að koma síðustu 2 helgar að leita að mér í vinnunni...

Svo eftir vinnu er næstum beint í partey, innflutningspartý hjá Idu og Marie :) ætlum að fara á Suðurlandssentrið á eftir að kaupa klappstóla handa þeim híhí... í gær þurftu þær að vera með garðhúsgögn inni þó við værum bara 7 eða 8

 

Haustfrí eftir viku, þá kemur Stefán => OSLO => gistum hjá Elinu og verðum að fara í tívolí;)

Alicante og Barcelona 29.okt-7.nóv

Ísland 28.des-4.jan

 


» 6 hafa sagt sína skoðun

08.09.2007 13:36:15 / binna

8.september!!

Hæhæ

Reyndi að blogga fyrir sona viku og var búin að skrifa helling en nennti ekki að gera það aftur :) en man sko ekkert hvað ég skrifaði þá..

Allavega þá vorum við Linn að hjálpa Idu og Marie að flytja úr geymslunni okkar og í íbúð hérna niðrí bæ :) hehe þannig að núna búum við bara 3 aftur hérna, svo nóg pláss! En þær þurfa báðar að sofa í stofunni núna því þær komu rúmunum sínum ekki upp tröppurnar inn í svefnherbergin.... vesen...Þegar við vorum búnar að flytja drasl þá splæsti pabbi hennar Idu í pizzu og Ida var búin að baka skúffuköku size eplaköku sem var geggjað góð :D svo við átum pínu og fórum svo heim til okkar að drekka og svo á djammið, Linn var svo heppin að einhver labbaði á Marie svo ALLUR bjórinn hennar fór í andlitið á henni HAHAHA það var svoo fyndið:haha: ýkt óheppin...

En svo fórum við til Danmerkur á þriðjudagskvöldinu, rosa stuð á ferjunni :) byrjuðum á því að fá okkur að éta á hlaðborðinu og bjór með matnum og svo keyptum við áfengi í fríhöfninni og settumst inn á klefann okkar að drekka, securitas með stæla út af hárri tónlist eins og venjulega hehe... en þetta var alveg magnað, við vorum svo margar úr bekknum og mörg busabörn og svoleis.. :)

Flestir urðu frekar skrautlegir og sumir duttu meira en aðrir á dansgólfinu hehe.. ekki ég sko! Ætluðum eigilega ekkert að sofa því við komum í land klukkan hálf 8 um morguninn en klukkan hálf 6 var ég farin að dotta á barnum svo ég fór inní klefa og þá voru Linn, Henriette og Marie háttaðar svo við flissuðum aðeins og sváfum svo... við Linn ætluðum SKO að vakna til að ná að versla meira í fríhöfninni áður en hún lokaði kl 6:45... ég vaknaði 6:42 og sagði Linn að vakna og við hlupum í Tax free og keyptum kjöt, svínasteik, kjúlla, bacon, hamborgaragrygg, pepperoni og skinku :D

Ein kínversk kelling var að MISSA SIG í að hamstra kjúkling... vá hún tók svona 20 kíló án gríns... hehe svo löbbuðum við eldhressar framhjá tollverðinum með allt of mikið áfengi en þá voru þeir svo uppteknir að stoppa kínversku gelluna að þeir tóku ekkert eftir okkur :D haha greyið samt... þeir tóku allt af henni :(

Amm.. geggjað veður í dag, ég og Linn fórum í bæinn að shoppa og fengum okkur ís :) ég keypi einn ræktarbol og einn djammbol

Anne Gunn ætlaði svo að koma til mín á eftir að drekka og svo skellum við okkur í eitthvað risapartý í strandhúsinu hennar Hilde :haha:

Var að panta mér far til mömmu í heimsókn, flýg héðan til Alicante og svo ætlum við að fara til Barcelona og ég svo heim flýg þaðan :) verð á Spáni 29.okt til 7.nóv semsagt, hlakkar geggjað til að sjá Barcelona! Borgaði btw 10evrur fyrir flugið frá Barcelona til Osló :haha: fáránlega ódýrt... reyndar 15þús héðan og til Alicante en samt ... :)

Er að spá í að fá einhvern með mér til Marseille, Madrid, London, Milan, Pisa, Glasgow eða Dublin í helgarferð einhvertíman í vetur :) hægt að fá flug á 2þúsund kall ef mar er heppin, Ryan-Air er bara magnað :haha:

Svo er Stebbi að koma í heimsókn eftir 3 vikur, í haustfríinu og við ætlum að skella okkur til Oslo... Svo sagðist Svala ætla að koma en held hún sé að beila :o hehe

 


» 7 hafa sagt sína skoðun

18.08.2007 22:15:48 / binna

Allt að gerast :)

Veit ekki hvort ég geti bloggað almennilega núna úr þreytu en ég skal reyna, verður líklega meira sona upptalning :)

 Kom á fös nóttunni með Huldu og famlilíu... misstum næstum því af vélinni í Osló, þurftum að hlaupa á milli gate-a og ég hélt á Sunnu í annarri og með tösku á bakinu og troðfulla fríhafnarpoka í hinni.... frábært... og vorum kölluð upp svona 5 sinnum á leiðinni því gate-ið þurfti auðvitað að vera í hinum endanum af flugvellinum... úff, komum svo sveitt og æðisleg inní vél langsíðust og fengum nokkur falleg lúkk :S hehe..  vorum svo flutt afþví það var útigangsmaður í röðinni okkar sem stinkaði svona skemmtilega.. hehe greyið hann samt sat aleinn samt var vélin troðfull allstaðar annarsstaðar :)

Gisti hjá Huldu og við héldum upp á 1.árs afmælið hans Birkis minns á laugardeginum, svo skellti ég mér heim og hentist í sturtu og svo byrjað að drekka, fórum í svona böðlapartý á skólabarnum og svo í bæinn, vöknuðum þunnar og skelltum okkur 3 á ströndina í blíðunni á sunnudeginum :)  Svo fórum við á böðlafund og ég og Guðrún fórum svo út að borða um kvöldið... Á mánudeginum sýndum við busakrökkunum okkar skólann og ræktina og svona og héldum svo partý um kvöldið... mjög vel heppnað reyndar :P hehe heima hjá greyið Henriette! Ein sem ældi svona skemmtilega útum allt og dó svo þannig að við henntum henni inn í rúm til kærastans hennar Henriette þangað til við gætum komið henni heim :) og drifið okkur á djammið, sem var stuð =)

Á þri var svo frí í skólanum sem betur fer, þannig að við bara héngum þangað til var nýtt partý hjá okkur um 6 leytið :) komu 30 manns eða svo og íbúðin smekkfull, gott partý... mikið að laga til daginnn eftir .. bahh fórum samt í skólann á miðvikudeginum kl 8-11 og svo nap-time og svo laga til og elda mat :P Skóli til 7 á fim og svo fór ég til Huldu og gisti.. kom á fös aftur og beint á djammið, annað partý hjá Henriette, ekki jafn sóðalegt og síðast samt hehe... en svo bara í bæinn og ég og Torunn skelltum okkur á burger á Esso mmm :P svo var búið að færa Harveys okkar til mikillar undrunar... ágætt sosem, meira pláss en áður :)

En já svo var ég að vinna í dag, alein með 8 sjúklinga að gefa þeim öllum lyfin sín og læti... er svo að fara að vakna eftir 6 tíma og back to work... svo annað afmælispartý hjá Birki á morgun líklega :)

 Þarf svo bráðum að fara að setja saman nýjú fínu Ikea hilluna sem ég lét versla handa mér :)

Annars bara bátsferð á þri og út að borða með busakrökkunum, pub-to-pub race á mið og þynnkudagur á fim :) og svo vinna aftur næstu helgi,.. ohh alltof mikið að gera 

 Jæja helvíti magnað blogg hjá mér,,, kommentiði nú gæskurnar =)

 


» 7 hafa sagt sína skoðun

02.06.2007 16:18:30 / binna

2.júní!!

Vá tíminn flýgur :) ekki nema vika þangað til ég verð á Ak, 5 dagar í Reykjavíkina..

Og það er laugardagur og ekkert djamm, verð að geyma það þangað til á þriðjudaginn, þá er síðasta prófið og væntanlega próflokadjamm 8) Svo er barasta flytja og þrífa á mið... oj! Og svo kemur kelling að skoða hvort það sé nógu vel þrifið á fim og hún er sko algjööör beygla.. kemur með spray og hvíta tusku og sprayar og þurrkar af öllu :S sjæsa... bak við eldavélina og læti... kannski eins gott að vera ekki of þunn að þrífa...

Annars bara lítið búið að gerast... prófalestur og Friends og fór í bíó á Pirates 3:) Ég og Linn vorum búnar að undirbúa okkur vel með því að horfa á Pirates 1 og 2 helgina áður en við fórum í bío! Samt skildum við nú ekki allt hehe... Svo bara rólegheit...

Féll pottþétt á prófinu sem ég var í á mið :S frábært... kemur í ljós 21.júní, tregu kennarar!

Svo eru margir vinir mínir að flýja bæinn, skil ekkert í þessu... Elin og Björn að flytja til Oslo og Hilde að flytja til kallsins og ég veit ekki hvað... Þá förum við Bente samt pottþétt í Road-Trip til Oslo að heimsækja Elinu gellu :haha:

Svo bara er móðir mín að fara að flytja til Spánar 1.sept-1.maí :) flott hjá henni, svo ég heimsæki hana líklega einhvertíman í vetur! 8)

Líklega 3 sólarlandaferðir næsta vetur, not bad 8)
 

5 dagar... blogga líklega ekkert fyrr en bara einhvertíman í sumar eða haust :)


» 7 hafa sagt sína skoðun

16.05.2007 10:15:12 / binna

Eurovision og djammleysi

Jej mér tókst að semja titil... samt glatað þetta djammleysi undanfarið...

Á fimmtudaginn horfðum við systurnar á Eurovision forkeppnina og borðuðum ís og nammi :) og hlógum mikið.. hehe að fólk fáist til að taka þátt er beyond me... 

Fannst samt mjög impressive þegar norska gellan skipti úr stuttum kjól í síðan á einni sekundu.. :) pottþétt eitthver sjónhverfing hehe... oftast eru þær nebbla í síðum og rífa hann af og eru svo í stuttum... hmmm

Fékk mér reyndar 2 bjóra á fös í þeirri von að verða flinkari að spila á gítar.. en það gekk ekkert svo vel, hehe :) kann samt sona 2 intro núna jejj 8)  Og auðvitað skellti ég einum í frystinn til að kæla hann en fann hann í fyrradag sprunginn í tætlur og bjórkrap í öllum frystinum og svo tókst mér að skera mig svona laglega á glerbrotunum... minnir mig bara á topplúguslysið Dagný ;)

Skil ekki að fólk fái sér topplúgur... bara dauðagildrur hehe

Jamm á laugardaginn drullaðist ég upp í skóla kl 12 til að lesa með Torunn... Það gekk sona agalega vel... not.. við blöðruðum bara en svo fór hún og þá náði ég að lesa aðeins og fór svo í ræktina og svo í mat til Henriette, Kjetil og Linn :)

Linn eldaði þessa fínu svínasteik, gratineraðar kartöflur og steikta sveppi og lauk mmmm :D  Verður ekki slæmt að búa með henni á næsta ári hehe... Svo skoðuðum við ferðir til sólarlanda á netinu, við erum búnar að ákveða að skella okkur eitthvað í haust í eina viku... kýpur kemur sterklega til greina :haha: það verður snilld!

Jepp annars er ég búin að vera að lesa alltof mikið... alveg sýrð í kollinum... farin að telja sokkana mína og sona... á 53 sokka (ekki pör)... aulalegt

Fórum á kaffihús á sunnudagskvöldið, ég, Bente, Elin og Torunn :) mjög gaman, vorum með svo mikil læti að fólkið við hliðina á okkur færði sig... hehe

Fór í sund með Huldu og krökkunum einhvertíman um daginn og ég og Sunna fórum í gufubað og hún hélt að pabbi sinn ætti steinana í gufubaðinu.. haha krútt.. og sagði bara: "Ahh.. heitt og gott" 

Jepp back to the reading about Freud, Erikson og heilann og eitthvað...  en fyrst verð ég að horfa á Glæstar vonir :) jeeee

Er búin að panta flug norður laugardaginn 9.júní :) beint á djammið :haha: 

 


» 6 hafa sagt sína skoðun

08.05.2007 17:29:36 / binna

Stjörnuspá dagsins

Bogmaður: Æfingin skapar meistarann, og þú ert orðinn svo góður á þínu sviði að þú getur gert hlutina í svefni. Verðlaunin eru vellíðanin sem þessu fylgir.

Flott, þetta þýðir greinilega að ég þurfi ekkert að lesa fyrir prófin :) gott að vita!

Ég er allavega farin að trúa á stjörnuspár núna!

Ok lélegt blogg en nenni ekki að segja hvað ég er búin að vera að gera nema í einni setningu... djamm á fös og vinna lau, sun og mán :) Váááá hvað gamalt fólk getur verið ruglað...

Til dæmis að klæða sig úr fötunum fyrir framan fullt af fólki og skilja ekkert afhverju það er ekki sniðugt... Og að geta alls ekki sofið í náttbuxum því það eru ekki vasar á þeim... 

Annars eru dýr að snúast á móti mér... mávar míga á mig í almenningsgörðum og blóðsugur girnast blóðið mitt... ógeð!

 

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

02.05.2007 19:05:01 / binna

Einmitt

Þessir titlar á bloggunum eru alveg að fara með mig.. hehe

En ég sot hjá systu núna.. kláruðum verkefni í dag! Ýkt flinkar, áttum ekki að skila fyrr en á föstudaginn einu sinni :)

Annars er þvílík blíða hérna í Norge, ég brann sona hressilega á sunnudag og mánudag.. hehe en er að jafna mig núna... Var ON FIRE á djamminu á mánudaginn... logaði alveg og fólk sem sat við hliðina á mér alltaf að hneikslast hvað ég var heit á höndunum hehe

Já allavega þá var bara tekið því rólega á fös...ætluðum að djamma en beiluðum á því og ákváðum að gera verkefni snemma á lau... dugnaður! Löbbuðum niðrá strönd til að athuga hvort væri tívolí þar því Björn auli sagði það hehe.. en það var semsagt ekki, þannig að það voru bara 2 bjórar og setið á Harveys og á fiskibryggjunni og svo rölt heim og skellt í Friends :)

Á laugardaginn unnum við síðan í verkefninu í nokkra tíma, svo skellti ég mér niðrí bæ áður en lokaði og verslaði mér skó sem mér er búið að langa í geðveikt lengi:) Reyndar eru þeir frekar stórir... :S svo ég hætti mér ekki í þeim á djammið á lau.. 

Það var semsagt grillveisla hjá Idu annan laugardaginn í röð, grilluðum hambó og sátum útá palli og drukkum bjór.. Mér tókst svo að sannfæra Linn og Idu um að koma með á djammið og hittum þar Elinu á Harveys... þar var svo stappað að við fórum á Twist og vorum þar afganginn af kvöldinu :) ágætt nema Ida skipti á tóma bjórglasinu mínu og einhverju fullu sem stóð á sama borði og ég auðvitað tæmdi það án þess að fatta neitt :S hahaha

Á mánudaginn vorum við að vinna verkefni og Guðrún hringdi og sagði að hún ætlaði að halda partý þannig að við fórum nokkrar þangað, ég, Elin, Henriette og Linn :) mjög gaman, fullt hús þar og svo var farið á Harveys en ég fór nú bara frekar snemma heim það kvöldið...

Svo er planað að fagna að við séum búnar með verkefni á föstudaginn og stór stúdenta sigling til Dk á þriðjudagskvöld :) maaagnað! 

Jepp ég ætla að blanda geði hérna... hvernig væri svo að fólk kvitti 8|


» 7 hafa sagt sína skoðun

26.04.2007 08:56:06 / binna

Helgin

Hmm doltið mikið búið að gerast síðan ég bloggaði síðast.. En ég man ekki lengra aftur en föstudaginn, fór með Huldu systur og krökkunum á Sørlandssenteret að versla, ég að reyna að finna afmælisgjöf því ég var að fara í ammæli um kvöldið og hún að kaupa milljón dollur með viðarvörn... Ég endaði nú bara á að kaupa pottablóm og dreif mig svo að kaupa bjór og í afmæli til Silje, þar voru fullt af fólki og flestir urðu veeel drukknir :) einu of kannski því við enduðum svona 6 niðrí bæ og svo 2 í restina.. hehe ekki margir í bænum en við spjölluðum við einhvern barþjón sem splæsti í Cosmopolitan :P mm það er gott

Svo hittum við 2 gaura á Harvey´s og enduðum með þeim í eftirpartýi þar sem var spilað á gítar og drukkið meira og spjallað... svo kom ég mér heim klukkan hálf 7 um morguninn og svaf til 2 þegar síminn vakti mig... svo fór ég nú bara í sturtu og að taka mig til í grillveislu hjá Idu, vorum þar klukkan 7 og svona ægilega hress bara :)  þetta var nú í einhverju hesthúsahverfi og svo datt einhver af hestbaki og sjúkrabíllinnkom og læti... úff

En við grilluðum bara og vorum að spassast eitthvað og tókum svo strætó niðrí bæ sem við þurftum að HLAUPA til að ná... í rigningu... og greyið Marie missteig sig og var með feitan ökkla á eftir... hehe

Svo fórum við allavega útum allt í bænum það kvöldið og ég var heima um hálf 5

Á sunnudaginn þurfti ég svo að vakna til að vinna með verkefni sem endaði í rosalegum svefngalsa... wonder why... :) Ég og Elin skelltum okkur svo beint í bíó með strákunum úr eftirpartýinu á fös á Shooters með Mark Wahlberg :P Fín mynd, samt skyldi ég nú ekkert of mikið í henni..!

Ég var svo að vinna bæði mán og þri og gera verkefni um kvöldið... úff þetta verkefni er svo hrikalegt... er að fara að vinna í því á eftir líka JEJ... en hlýt nú að gera eitthvað skemmtilegt um helgina :)

Ble í bili


» 6 hafa sagt sína skoðun

20.04.2007 12:13:44 / binna

Djammfílingur

8)

Ég er mikið að spá í að prófa að fara ein á djammið einhvertíman.. ekki það að ég mundi pottþétt aldrei gera það...

Málið er það að ég kemst oft í mesta djammfílinginn þegar ég er ein heima að taka mig til og hlusta á tónlist og fá mér 1-2... Spurning hvort það yrði bara leiðinlegt ef það yrðu meira en 1-2 hmmm.. Kannski er ástæðan bara að ég á sona ýkt góða djammtónlist... 

Pæling dagsins hjá mér ...

Er að fara að versla og svo í ammæli dauðans ... 15 eða 16 stelpur í minnstu íbúð ever :) híhí held hún sé tuttugu og eitthvað fermetrar :) stööööð

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 8